Hakkað buff með kabers og hvítlaukshúðuðum gulrótum
(4 skammtar)
500 g hakkað nautakjöt
1/2 dl rasp
1 dl mjólk
1 laukur
1 egg
4 ansjósuflök
1-2 msk kapers
1 tsk salt
2 hnífsoddar hvítur pipar, mulinn eða malaður
3 gulrætur
1 msk smjör
2 hvítlauksgeirar
salt og pipar
800 g kartöflur
Kryddjurtasoð:
1 dl ferskar kryddjurtir
3 dl grænmetiskraftur
Undirbúningur:
Flysjið kartöflur og sjóðið. Hrærið raspið út í mjólkina. Saxið laukinn og
ansjósuflökin. Hrærið þessu saman við kjöt, egg, kapers, salt og hvítan pipar og
gerið úr því fars. Mótið buff úr farsinu og steikið í matarolíu við meðalhita.
Flysjið gulræturnar, skerið þær í lengjur og sjóðið í grænmetiskraftinum í
u.þ.b. 4 mín. Takið þær upp og setjið söxuðu kryddjurtirnar í kraftinn. Kælið
soðið dálítið og setjið í þeytisprota eða blandara. Bætið salti og pipar í eftir
smekk. Brúnið gulræturnar í smjöri og pressið hvítlaukinn yfir. Kryddið með
salti og nýmöluðum svörtum pipar. Berið fram hakkað buffið ásamt
kryddjurtasoðinu og nýsoðnum kartöflum.