Hakk og blómkál
fyrir 4

600 g blómkál
300 g nautahakk
1 laukur
1 lítil dós tómatpúrra
1 tsk kjötkraftur
1 msk olía
salt
pipar
basilíka

Sósa:
2 dl blómkálssoð
2 dl mjólk
3 msk hveiti
2 dl rifinn ostur
salt
pipar
basilíka

Aðferð:
Hlutið blómkálið í sundur og sjóðið í smá stund í söltu vatni þar til það mýkist (geymið 2 dl af soðinu fyrir sósuna). Setjið blómkálið í eldfast mót.
Steikið hakkið á pönnu í smá olíu ásamt lauknum. Bætið tómatpúrru og kjötkraftinum út í og kryddið með salti, pipar og basilíku, látið malla í u.þ.b. 5 mínútur og hellið yfir blómkálið í mótinu.

Sósan:
Setjið blómkálssoðið og 1 dl af mjólk í pott og látið suðuna koma upp, hristið hveitið saman við 1 dl af mjólk og hrærið út í sósuna og látið hana þykkna. Kryddið með salti, pipar og basilíku. Loks er osturinn settur út í og látið malla smá stund. Hellið sósunni yfir hakkið og blómkálið og bakið í 250°C heitum ofni í 10-15 mínútur.

Berið fram með brauði og fersku salati.