Grískar kjötbollur í tómatsósu

2-3 brauðsneiðar, skorpulausar
4-6 msk mjólk
600 g kjöthakk, 12-16% feitt
2-3 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt eða pressaðir
1/2 tsk timjan, þurrkað
1/2 tsk mintulauf, þurrkuð
1/2 tsk basilíka, þurrkuð
1/2 tsk pipar, nýmalaður
1 tsk salt, eða eftir smekk
2 msk ólífuolía
150 ml hvítvín eða vatn
1 dós tómatar, heilir

Brauðið rifið niður, sett í skál og mjólkinni hellt yfir. Látið standa í
nokkrar mínútur. Hakk, hvítlaukur, kryddjurtir, pipar og salt sett út í og
allt hnoðað vel saman, helst með höndunum. Mótað í fremur litlar kjötbollur,
á stærð við borðtennisbolta. Olían hituð á pönnu eða í víðum potti og
bollurnar snöggsteiktar við nokkuð háan hita; pannan hrist oft á meðan eða
bollunum snúið, svo þær brúnist jafnt. Víninu eða vatninu hellt yfir ásamt
leginum úr tómatdósinni og hitað að suðu. Tómatarnir saxaðir fremur gróft
(alls ekki í matvinnsluvél) og hrært saman við. Lok sett yfir og látið malla
við hægan hita í 8-10 mínútur, eða þar til bollurnar eru soðnar í gegn. Þá
er sósan smökkuð til með pipar, salti og e.t.v. kryddjurtum og bollurnar
síðan bornar fram í sósunni, e.t.v. með nýbökuðu brauði og tzatziki eða þá
með salati.