Grilluð svínarif

2-2,5 kg svínarif (spare ribs), höggvin eða skorin í bita
150 ml tómatsósa
4 msk dijonsinnep
3 msk epla- eða hvítvínsedik
2 hvítlauksgeirar, pressaðir
2 msk hunang eða síróp
1/4 tsk kanell
1/4 tsk chilipipar, eða eftir smekk
nýmalaður pipar
50 ml vatn
salt

Rifin sett í eldfast fat. Öllu hinu nema saltinu hrært vel saman og hellt
yfir. Rifjabitunum velt upp úr sósunni. Látið standa í kæli í a.m.k. 4 klst
og gjarna lengur. Þá eru rifin tekin úr leginum og söltuð. Grillið hitað,
rifin sett á það og grilluð við meðalhita í 20-25 mínútur, eða þar til
kjötið er steikt í gegn. Snúið tvisvar eða þrisvar og penslað með sósunni.
Líklegt er að logar gjósi upp þegar fitan fer að bráðna af rifjunum og þá er
best að færa þau til eftir hentugleikum. Borin fram t.d. með soðnum
hrísgrjónum og tómatsölsu, og nóg af servíettum eða eldhúsrúllublöðum, því
að þetta er matur til að taka á með höndunum og naga.