Grilluð kengúra á udon-núðlusalati
Soja-sesamdressing (hráefni):
500 ml Kikkoman-sojasósa
65 g Dijon-sinnep
5 g sesamolía
10 g sesamfræ
Núðlur:
Soðnar eins og venjulegt pasta í um 5-6 mínútur (ekki of lengi).
Aðferð:
Öllu hráefninu blandað saman í skál og þeytt saman eða blandað með töfrasprota.
Grænmeti:
(kúrbítur, gulrætur, mini-aspas og mini-maís) steikt létt á pönnu.
Kengúrukjöt:
Fæst núna víða í betri búðum, en oftast nær er það frosið. Best er að láta það
þiðna í einn eða tvo daga.
Einnig er gott að marínera kengúrukjötið í kryddblöndu til að gera það enn mýkra
og bragðmeira.
Kryddblanda (hráefni):
100 g ólífuolía
20 g truffluolía
5 g mulinn anís
10 g kryddjurtir, t.d. rósmarín,
garðablóðberg eða jafnvel kóríander.
Aðferð:
Gott er að láta kjötið liggja í um einn sólarhring.
Matreiðsla: Best er að elda kengúrukjötið á grilli til þess að fá þessa
grillskorpu sem er svo góð. Grillið
kjötið í um 2-3 mínútur á hvorri hlið og látið það svo hvíla í nokkrar mínútur
áður en það er skorið.
Best er að borða þennan rétt heitan en það er ekkert skilyrði.
Skammtur: 400 g kengúrukjöt miðað við fjóra (100 g á mann) og um það bil sama
magn af núðlum (100 g af mann).
Gott að hafa franskar með, þá eru allir sáttir.
