Grillağur lambahryggur meğ indversku ívafi

1 lambahryggur, fremur vænn
2 hvítlauksgeirar
1/2 tsk kummin, steytt
1/2 tsk kóríanderfræ, steytt
1/2 tsk fennikufræ, steytt (má sleppa)
1 tsk paprikuduft
chilipipar á hnífsoddi
nımalağur pipar
salt

Hryggurinn şerrağur, e.t.v. fitusnyrtur ögn, og svo er beittum hnífsoddi
stungiğ í hann beggja vegna hryggbeinsins á nokkrum stöğum og
hvítlauksflísum stungiğ í götin. Öllu kryddinu blandağ saman og núiğ inn í
hrygginn ağ ofan og neğan og svo er hann látinn standa viğ stofuhita í um
klukkustund. Grilliğ hitağ. Şegar şağ er orğiğ vel heitt er slökkt á öğrum
brennaranum og hryggurinn settur á grilliğ şeim megin, şannig ağ ekki sé
eldur beint undir honum. Lokağ, hitinn á brennaranum sem kveikt er á
lækkağur ögn nema kalt sé í veğri, og hryggurinn grillağur í 45-60 mínútur
eftir stærğ og ağstæğum. Snúiğ einu sinni eğa tvisvar en best er ağ opna
grilliğ sem allra minnst. Ef vill má svo færa hann yfir eldinn smástund áğur
en hann er tekinn af grillinu til ağ fá meiri lit en şağ ætti şó ağ vera
óşarfi. Látinn standa smátíma áğur en hann er skorinn.

Ég hafği meğ hryggnum salat meğ tómötum og gúrkum, kartöflur soğnar nærri
til fulls og síğan skornar í helminga eğa fjórğunga og steiktar (meğ hığinu)
í svolítilli olíu á pönnu og kryddağar meğ pipar, salti og svolitlu timjan
og oregano. Svo var ég meğ şrjár kryddsósur úr eğa meğ skyri (hvítlauks- og
timjansósu, indverska raitu og guacamole blandağ meğ skyri). Şetta passaği
allt ágætlega saman.