Grillaðar kindalundir
300 g kinda- eða lambalundir
1/2 laukur
1/2 sítróna
nýmalaður pipar
salt
Lundirnar skornar sundur eftir endilöngu og
hver lund skorin í 2-3 bita.
Laukurinn settur í matvinnsluvél og saxaður í mauk. Sítrónusafanum þeytt
saman við. Lundirnar settar í skál, laukblöndunni hellt yfir og látið standa
í um 1 klst. Þá er kjötið tekið úr marineringunni og hún strokin vel af.
Kryddað með pipar og salti og þrætt upp á teina. Grillið í ofninum hitað og
kjötið grillað í 2-3 mínútur á hvorri hlið.