Grillbakaðar svínakótelettur með grillsósu
fyrir 4

 

1 kg svínakótelettur
300 g Tilda-hrísgrjón
salt og pipar
1 vínberjaklasi
1 stk. snittubrauð

 

GRILLSÓSA

3 dl tómatsósa
1 dl matarolía
1 dl sojasósa
2 dl rifsberjahlaup
2 tsk. rauð paprika, smátt söxuð
4 stk. hvítlauksgeirar, smátt saxaðir

Hrísgrjónin eru soðin í léttsöltu vatni. Hráefnið í sósuna er hrært saman. Kjötið er kryddað, penslað og grillað við háan hita í 5 mínútur á hvorri hlið. Síðan sett í álform og sósunni hellt yfir og lokað með álpappír.Látið bakast á grillinu í 15 mínútur.

 

MEÐLÆTI

Soðin hrísgrjón, snittubrauð og vínber.