Grillaðar andabringur með hindberjasósu
fyrir fjóra

3 andarbringur
Sveppir
Brokkoli
Grænn spergill
200 g hindber
50 g hrásykur
1 msk. Dijon-sinnep
Hita ofninn í botn á
grilli og setja grindina
mjög ofarlega. Um
3 andarbringur eru
þerraðar og hreinsaðar
þannig að það verði
250 g á mann.
Skera mjóar rendur í fituna og passa að skera ekki í kjötið. Salta og pipra fituna, best er að nota Maldonsalt. Loka kjötinu á pönnu með fituna upp í um 1 mín. setja bringurnar í fat og inn í ofn í um 7-10 mín., fer eftir stærðinni, bíða smá með að skera kjötið eða í um 3 mín. og skera þá í þunnar sneiðar.

Meðlæti:
Steiktir sveppir og brokkoli eða grænn spergill.

Sósa:

200 g hindber og 50g hrásykur látið malla við vægan hita og sett í skál, þá er bætt við einni matskeið af Dijon-sinnepi og hrært vel saman.