Grillað hrefnukjöt með sérrýpiparsósu
2 bollar kikkoman - sojasósa
2 msk engiferrót, söxuð
5 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
Blandið hvítlauk og engiferi í sojasósuna, látið kjötið liggja
í um tvo tíma í leginu og þerrið það svo.
Grillið á að vera mátulega heitt og mikið atriði að vera búin að hreinsa það vel
og olíbera lauslega.
Grillið sentimetra þykkar kjötsneiðar í rúmlega hálfa mínútu á hvorri hlið.
Kjötið er meyrast þegar það er borðað millisteikt. Grátt hrefnukjöt og
gegnumsteikt verður líklega seigt.
Ef fólki finnst bleiki safinn í kjötinu ekki sérlega aðlaðandi þá er bara að
setja upp sólgleraugu.
Sérrýpiparsósa
1 bolli mjólk
1 bolli rjómi
sveppir eftir smekk, smjörsteiktir
sveppakraftur
kjötkraftur
sérrý eða madeira vín
smjörbolla
Bakið upp sósuna með því að bræða smjör og hræra hveiti í
kúlu. Þynnið sósuna með mjólkinni og rjómanum, bætið sveppum, kryddi og krafti.
Í lokinn er sérrýi eða madeira víni bætt út í eftir smekk.
Berið fram með bökkuðum kartöflum eða frönskum kartöflum, góðu salati og grilluðum lauk