Glóandi kalkúnabringur með hvítlauk, rósmaríni og beikoni

Hráefni:

1 kalkúnabringa

extra virgin ólífuolía

ferskt rósmarín

8 hvítlauksgeirar

6-8 sneiðar beikon

gróft salt og pipar

Aðferð:

Fyrst eru hvítlauksgeirarnir settir í pressu. Því næst er kalkúnabringan fyllt með hvítlauknum og beikoni. Rósmarín er síðan sett inn í bringuna, ólífuolían smurð yfir kalkúninn og salti og pipar stráð yfir eftir smekk. Kalkúnninn er síðan bakaður í ofni í um 30-35 mínútur við um það bil 180 gráður. Mælt er með því að fólk beri fram með þessu villta sveppasósu með týtuberjum, eplasalati og sætum kartöflum

 

Seðjandi sætar kartöflur með heslihnetum

Hráefni:

3 stórar sætar kartöflur
um 30 g smjör
200 g heslihnetuflögur
4-5 msk. púðursykur (má vera hrásykur)

Aðferð:

Afhýðið kartöflurnar, rífið niður á rifjárni og setjið í eldfast mót. Smjör brætt og hellt yfir. Næst er sykrinum og heslihnetunum stráð yfir og bakað í 40-45 mínútur við 180°C. Villt sveppasósa með týtuberjum

 

Hráefni:

300 g villtir sveppir (þurrkaðir)
soð af kalkúninum
1 msk. týtuberjasulta
½ lítri rjómi (má sleppa)

 

Aðferð:

Sveppirnir eru lagðir í bleyti (í um 3 tíma), síðan soðnir. Gott er að nota töfrasprota til að mixa sveppina alveg niður. Soðinu af kalkúninum er hellt yfir og ein msk. Af týtuberjasultu sett út í soðið. Gott að setja hálfan lítra af rjóma (má sleppa fyrir þá sem ekki vilja mjólkurvörur) út í. Frískandi eplasalat

 

Hráefni:

2 lífræn græn epli
6 döðlur
1 lífræn hrein jógúrt
1 appelsína

 

Aðferð:

Skerið eplin og döðlurnar í bita blandið saman við jógúrtina og kreistið appelsínuna yfir.

Kalkúnn