Fylltur lambahryggur með apríkósum og furuhnetum
lambahryggur
100 g þurrkaðar apríkósur
30 g ristaðar furuhnetur.
parmaskinka
Aðferð: Lambið er hreinsað. Apríkósurnar og furuhneturnar eru saxaðar fínt með
hníf. Plastfilma er lögð á borðið. Parmaskinkan lögð hlið við hlið. Lambavöðvinn
lagður hlið við hlið. Apríkósur
og furuhnetur lagðar ofan á vöðvann. Lambinu rúllað upp í plastfilmuna. Brúnað á
öllum hliðum, kryddað með salt og pipar. 2 mín. í ofni á 160°C og látið hvíla.
Grænmetisragú
favabaunir (hestabaunir)
perlulaukur
oyster-sveppir (eða bara sveppir)
rjómi
Aðferð:
Allt léttsteikt á pönnu, pínu rjóma bætt við og soðið aðeins niður. Kryddað með
salti og pipar.
Cream fresh-dressing
400 ml sýrður rjómi
2 hvítlauksrif, fínt söxuð
1stk. lime, börkur (rifinn) og safi
30 ml maple-síróp/ hunang
graslaukur, fínt saxaður
salt og pipar
Aðferð: Öllu blandað saman og kryddað til með salti, pipar og hunangi.
Fennelsalat
fennel
blaðlaukur
gulrætur
dill
kerfill
Aðferð:
Fennel, blaðlaukur og gulrætur skorið mjög þunnt og lagt í klakavatn. Dill og
kerfill pillað. Dressað með balsamediki og olíu. Kryddað með sjávarsalti.