Fylltur kúrbítur að hætti Rikku
fyrir 4
4 kúrbítar
1 msk Ítalía ólífuolía
1-2 skalotlaukar, saxaðir
100 g sveppir, saxaðir
7 salvíublöð, söxuð
200 g nautahakk
1/2 tsk múskat
1 egg
2 brauðsneiðar, fínt muldar
salt og pipar
30 g parmesanostur, rifinn
Skerið kúrbítana til helminga eftir endilöngu og látið þá malla í léttsöltu
vatni í 8 mínútur. Hreinsið kjötið innan úr þeim með skeið. Hitið ofninn í
180°C. Hitið ólífuolíuna á pönnu við meðalhita og steikið laukinn, sveppina og
salvíublöðin í 2-3 mínútur, bætið nautahakkinu saman við og brúnið. Hellið öllum
safa frá sem safnast hefur á pönnunni og kryddið með múskat, salt og pipar og
kælið. Bætið egginu og brauðmylsnunni saman við. Fyllið kúrbítana og stráið
parmesanostinum yfir. Bakið í ofni í 25-30 mínútur.