Fylltur kalkúni með trönuberjum og banönum (Fyrir sex(manns :-))

Fylling:
250 g rauð hrísgrjón
4 stk hvítlauksgeirar
40 stk perlulaukar
olía til steikingar
1 poki trönuber
200 g þurrkaðir bananar
2 búnt basilíka
200 g ljósar rúsínur
8 stk mozzarellaostur
salt og pipar

Sjóðið hrísgrjón samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum. Afhýðið hvítlauk og saxið fínt. Afhýðið perlulauka og steikið í olíu í potti með hvítlauknum. Bætið trönuberjum og þurrkuðum banönum út í og steikið áfram. Saxið basilíku og blandið saman við ásamt hrísgrjónum og rúsínum. Rífið mozzarellaost niður með höndunum og blandið saman við. Kryddið með salti og pipar.

Kalkúnn:
1 stk kalkúnn, 4 kg
300 g smjör
salt og svartur pipar
viskastykki

Bræðið smjör í potti og leggið viskastykkið í smjörið. Setjið fyllinguna í kalkúnnann, kryddið með salti og svörtum pipar og hyljið með viskastykkinu. Eldið kalkúnann í 3 1/2 klst. við 130°C með viskastykkinu. og síðan í 25 mín við 220°C án þess.