Fyllt lambalæri
fyrir 8
2 kg lambalæri, úrbeinað
salt og pipar
þurrkað tímían á hnífsoddi eða ferskt mulið
225 g ferskir sveppir, saxaðir
150 g smjör
2 stórir laukar, saxaðir
2 msk hveiti
2 msk rjómi
200 g rjómaostur
1/2 bolli brauðmylsna
Stráið kryddinu yfir kjötið. Látið lauk og sveppi krauma í hluta af smjörinu þar
til þeir verða meyrir. Setjið í blandara ásamt hveiti, rjóma og rjómaosti í
nokkrar mín. og síðan í pott og látið suðuna koma upp. Hrærið í allan tímann.
Takið pottinn af hellunni og hrærið í allan tímann. Takið pottinn af hellunni og
hrærið brauðmynslunni saman við. Smakkið og bætið við kryddi ef þörf er á.
Smyrjið fyllingunni á kjötið, rúllið því upp og vefjið um það bómullargarni.
Stráið kryddi yfir alla rúlluna. Hitið grillið á hámarkshita og lækkið síðan á
miðlungshita. Fjarlægið grillgrindina og setjið grillbakka beint ofan á glóðina.
Stingið grillteininum í gegnum kjötvafninginn og tryggið að kjötið sé vel fest.
Látið snúast yfir glóðinni í um 2 klst. Penslið með smjöri af og til á meðan og
gætið þess að bakkinn sé undir kjötinu. Einnig má grilla kjötið á grillbakka
ofan á grindinni í um 1 klst. Slökkvið á grillinu og látið bíða í 20-30 mín.
Berið kjötið fram með bökuðum kartöflum og fersku salati. Steikingartíminn er
alltaf svolítið breytilegur eftir smekk hvers og eins. Berið afgangsfyllingu
fram með kjötinu eða notið í sósu til að bera fram með.