Frikadillur með persillesósu
1 kg svínahakk
1-2 laukar, saxaðir
1 egg
3 brauðsneiðar
1 bolli mjólk
1 ½ tsk salt
1 tsk malaður svartur pipar
½ tsk negull
1 tsk múskat


Brauðið er bleytt upp í mjólkinni og síðan er allt sett í hrærivél og hrært vel saman. Mótaðar bollur eru steiktar í olíu og síðan settar inn í ofn við 200°C í 20-30 mínútur.
Uppskriftin dugir fyrir 4-5.

Persillesósa (steinseljusósa)
uppbökuð
70 g smjörlíki
3 msk hveiti
8 dl mjólk
1 súputeningur
salt og pipar eftir smekk
1 poki fersk steinselja (má gjarnan vera meira)


Smjörlíki brætt í potti, hveitið sigtað út í og hrært saman við. Mjólkinni hrært við smátt og smátt og suðan alltaf látin koma upp á milli. Hafið miðlungshita á hellunni. Kryddað með salti, pipar og súputeningi. Steinseljan söxuð smátt og bætt út í. Sjóðið við lágan hita í 2-3 mínútur svo sósan taki bragð af steinseljunni. Athugið að hræra vel í pottinum allan tímann þar sem uppbökuð sósa brennur auðveldlega við.

Berið fram með soðnum kartöflum, rauðkáli, grænaum baunum.

 

Kjötbollur