Folaldalund með sinnepskryddaðri piparsósu
800 g folaldalundir
30 stk græn piparkorn, niðursoðin, Opies
3 dl rjómi
2 msk koníak
2 msk ólífuolía
2 msk sinnep
nautateningur eða annað kjötsoð
pipar, svartur
salt
Hitið olíuna og steikið piparkornin létt.
Hellið koníakinu út í og berið að því eld. Hellið rjómanum út í og hrærið
sinnepið saman við. Bætið við kjötkrafti og kryddið með salti ef með þarf.
Kryddið kjötsneiðarnar með salti og pipar. Steikið þær á pönnu í um 2 mínútur
hvorum megin.
Framreiðsla
Berið kjötið fram með sósunni ásamt kartöflunum og grænmeti.