engiferönd
1 önd
2 tsk salt
0,5 tsk svartur pipar

fylling
100 g sveppir
80 g laukur
1,5 epli
10 sveskjur (steinlausar)
1 dl brauðmylsna
0,75 dl mjólk
1,5 tsk engifer (ferskt)
1 tsk salt
15 g smjör

sósa
6 dl soð og vatn
1 tsk kjúklingakraftur
0,5 tsk kjötkraftur
25 g hveiti
2,5 dl rjómi
0,75 tsk engifer (ferskt)
1,5 msk appelsínumarmelaði
salt og pipar
1,5 msk koníak

Hreinsið fuglinn og þerrið, stráið kryddblöndunni inn í og utan á.

Fylling:
Hreinsið sveppi, flysjið lauk og epli, takið kjarnahúsið úr eplinu. Maukið sveppi, lauk, epli og sveskjur í matvinnsluvél. Blandið mauki, raspi, vökva (má nota rjóma í staðinn fyrir mjólk) og kryddi í brætt smjör á pönnu og látið krauma í 2-3 mín. Setjið fyllinguna inn í fuglinn og lokið með kjötprjóni. Steikið í ofni við 160°C í 1½ klst. Hellið vatni í skúffuna síðustu ½ klst.

Sósa:
Sigtið soð og fleytið fituna að mestu ofan af. Mælið soðið í pott og bætið vatni út í þannig að verði 6 dl. Stráið hveiti yfir og bíðið þangað til að það botnfellur. Hitið. Setjið krydd og marmelaði saman við. Hrærið vel í á meðan suðan kemur upp. Bætið rjóma út í og sjóðið við vægan hita í 5-10 mín. Setjið koníak (eða madeira) út í (má sleppa) og kryddið ef með þarf.