Dönsk villidúfa
Dúfan
Takið vel snyrtar og fallegar dúfubringur og steikið létt á pönnu með smá olíu,
smjöri og rósmaríngrein. Setjið bringurnar í eldfast mót ásamt öllu úr pönnunni
og látið krauma í ofninum við um það bil 45 – 50 gráður uns þær eru meyrar og
fínar. Skerið í fallegar sneiðar. Salt og pipar.
Kartaflan
Er skorin í hæfilega stærð og elduð í miklu smjöri á pönnu ásamt hvítlauk og
timian uns meyr. Salt og pipar.
Laukurinn
Bakið perlulauk í ofni uns hann er næstum meyr. Takið út, kælið og skrælið!
Sjóðið upp á 50/50 blöndu af sykri og úrvals eplaediki með einni grein af
rósmaríni út í og hellið yfir skrældu laukana. Þetta þarf að fá að standa í
minnst 2 tíma. Rétt fyrir framreiðslu eru laukarnir svo hitaðir í potti með
smjöri. Svo má bæta á þá ögn af söxuðum jurtum og smá salti.
Grænmetið
Sellerírótin er skorin niður í fallega skífu og elduð á pönnu í smjöri við vægan
hita uns meyr og smökkuð til með smá pipar og salti. Afskurðurinn er soðinn í
kjúklingasoði, mjólk og rjóma uns meyr og þá sigtað. Rótin er múluð og smökkuð
til. Gott væri líka að steikja góða sveppi og bera fram með dúfunni.
Sósan
Höggvið niður beinin í sósuna. Brúnið þau í örlítilli olíu ásamt öðrum
kjötafskurði í víðbotna potti. Þegar beinin eru byrjuð að taka lit, bætið þá
skorinni gulrót, selleríi og lauk við. Brúnið áfram. Hellið vatni saman við og
kryddið til með ögn af einiberjum, lárviðarlaufi. Látið suðuna koma upp hægt og
rólega og sjóðið niður um helming. Fleytið allan sora af soðinu, jafnóðum og
hann flýtur upp. Sigtið soðið í annan pott og látið suðuna koma upp að nýju.
Þykkið soðið ef þurfa þykir. Smakkið sósuna til með kjötkrafti ef þess þarf.
Auðvitað má svo
