Delfí tortillur með mangó chutney og salsasósu (fyrir fjóra)
1 pakki tortillur (8 stk.)
600 g kjöt, t.d. eldaður, kaldur kjúklingur í bitum eða steikt nautahakk.
1 avókadó, skorið í litla bita
1 askja kirsuberjatómatar, skornir í tvennt
1 dós maísbaunir (u.þ.b. 200 g) og/eða nýrnabaunir
200 g rifinn gratínostur
1 krukka salsasósa (u.þ.b. 300 ml)
Hitið ofninn í 180°C. Delfí osti og mangó chutney er blandað saman í skál. Á miðju hverrar tortillu, eftir henni endilangri, er sett Delfí-mangómauk, kjöt, avocado, baunir og tómatar. Tortillunum er rúllað upp og þeim raðað í eldfast mót. Salsasósu dreift langsum yfir hverja tortillu og síðan rifnum osti. Bakað í ofni í 20 mínútur. Berið fram með salati.