Chili-hakk
1 stór laukur
2 gulrætur
1 sellerístöngull
3-4 hvítlauksgeirar
2 msk olía
600 g nautahakk
1/2 tsk oregano
1/2 tsk timjan
2 lárviðarlauf
1/2 tsk kummin
1 msk chilikrydd, eða eftir smekk
chili- eða cayennepipar eftir smekk
nýmalaður pipar
salt
2 msk tómatþykkni (paste)
1/2 l vatn, og meira eftir þörfum
1 dós niðursoðnar pintóbaunir eða nýrnabaunir
e.t.v. ostur
Laukur, gulrætur, sellerí og hvítlaukur saxað smátt (hér er gott að nota
matvinnsluvél). Olían hituð í víðum potti, grænmetið sett út í og látið
krauma við meðalhita í um 5 mínútur og hrært oft á meðan. Þá er hakkið sett
út í og látið brúnast. Öllu kryddinu stráð yfir og hrært saman við og síðan
tómatþykkni og vatni. Hitað að suðu, lok sett á pottinn og látið malla við
hægan hita í a.m.k. 1 klst; hrært af og til og vatni bætt við ef þarf.
Baununum er svo hrært saman við og látið malla í 15-20 mínútur í viðbót.
Smakkað til og ef óskað er má svo strá 50-100 g af osti (skornum í teninga)
yfir, setja lokið á pottinn og láta standa þar til osturinn er bráðinn.
Borið fram með góðu brauði.