SS Bláberjalæri með mildri gráðostasósu, perubláberjasalati og kartöflusveppagratíni (Jólalæri) fyrir sex
Bláberjalæri
1 stk SS bláberjalæri
2 dl púrtvín
2 dl vatn
Nýmulinn svartur pipar
Aðferð:
Hitið ofninn í 150°C. Setjið læririð í steikarpott ásamt púrtvíni og
vatni. Kryddið með nýmuldum svörtum pipar.
Steikið í u.þ.b. 2 tíma miðað við blástursofn (170°C án blástur) Takið
steikarpottinn út og sigtið soðið. Setjið ofninn á grill setjið lærið inn og
grillið örlítið. Þá verður puran stökk. Setjið á fat og framreiðið.
Mild gráðostasósa:
Soðið úr steikarpottinum
70 g gráðostur
4 dl rjómi
Salt og pipar
Kjötkraftur
Sósujafnari
Aðferð:
Setjið soð, rjóma og gráðost í pott og sjóðið þar til osturinn er
uppleystur. Kryddið með salti og nýmuldum svörtum pipar. Þykkið með
sósujafnaranum og bragðbætið með kjötkraftinum.
Kartöflusveppagratín:
1 kg stórar kartöflur
250 g sveppir
1 msk smjör
1/2 stk laukur
3 dl rjómi
salt og pipar
100 g rifinn ostur
Aðferð:
Skerið sveppina í þunnar sneiðar og steikið í smjöri á pönnu. Skrælið
kartöflurnar og skerið í þunnar skífur, þerrið. Saxið laukinn. Leggið til
skiptis kartöfluskífur, lauk og sveppi og kryddið með salti og pipar á milli
laga þar til allt er komið í formið. Hellið þá rjómanum yfir. Látið rjómann leka
vel á milli. Stráið osti yfir og bakið við 150°C í ca. 50-60 mín.
Perubláberjasalat:
1 lítil dós bláberjakyr.is
3 msk sýrður rjómi
20 stk pecanhnetukjarnar
1/2 msk hlynsíróp
2 stk perur
ca. 50 skt bláber
Aðferð:
Hrærið saman bláberjaskyr, sýrðum rjóma og hlynsírópi. Saxið
pecanhnetukjarnana og setjið saman við. Skrælið og skerið perurnar í bita og
hrærið saman við. Látið bláberin út í að lokum og gætið að því að mauka þau ekki
mikið.