Andabringur í appelsínusósu
Uppskrift frá Nóatúni
4 andabringur
Salt og pipar
Sósa
5 dl. andasoð (t.d. oscar andarkraftur)
2 msk sykur
1 appelsína, skorin í bita
½ dl appelsínuþykkni (helst Sun quick)
1 dl rauðvín
Sósujafnari
Sósulitur
Skerið djúpar rendur í fituna á kjötinu þannig að hnífurinn risti aðeins í kjötið. Brúnið öndina á heitri pönnu með fituhliðinni niður fyrst og svo stutt á hinni hliðinni. Kryddið með salti og pipar og bakið í ofni við 150°í 15-20 mín.
Sósan
Brúnið sykurinn í potti setjið appelsínuna og steikið í 1 mínútu, hellið rauðvíni og appelsínuþykkni útí og látið malla í 5 mín. Sigtið í annan pott, bætið soðinu útí, og þykkið með sósujafnara. Bragðbætið með salti og pipar og gott er að setja má klípu af smjöri í sósuna rétt áður en hún er borinn fram
Horfa á vídeó hér