Sveppaturn
Baunafars
olía til steikingar
1 skarlotlaukur smátt skorinn
1 hvítlauksrif saxað
1 sellerístöngull smátt skorinn
1 msk smjör
1/2 pk sveppir í sneiðum
1 tsk grænmetiskraftur
1/2 tsk timjan
paprikuduft
svartur pipar
1 bolli soðið baunabygg
2 bollar soðnar kjúklingabaunir
2 msk brauðrasp
Hitið olíu í potti og setjið skarlotlauk, hvítlauk og sellerí út í. Steikið í
ca þrjár mínútur.
Bætið smjöri, sveppum, grænmetiskrafti, timjani og paprikudufti út í og látið
malla í ca fimm mínútur. Piprið eftir smekk. Setjið baunir og bygg út í. Hrærið
vel saman. Látið allt í matvinnsluvél og maukið. Bætið brauðraspi út í og kælið.
Sveppafylling
1 msk smjör
1/2 sveppir í sneiðum
sellerístöngull smátt skorinn
3 tsk möndlusmjör
1 msk sítrónusafi
1/2 tsk timjan
paprikuduft
salt
pipar
Bræðið smjör í potti og brúnið sveppina, bætið út í sellerí, möndlusmjöri og kryddi. Hrærið saman í u.þ.b. eina mínútu. Skiptið baunafarsinu í átta hluta og mótið úr þeim buff. Setjið sveppafyllingu á fjögur buff en lokið með hinum. Mótið svo úr verði litlir turnar. Veltið upp úr möndluspæni. Penslið með smjöri eða olíu. Bakið í ofni í ca 10-15 mínútur í 180°.
Berið fram með
Rauðkáli
Sellerímús
Sinnepssósu