Linsubaunabuff

2 soðnar kartöflur, u.þ.b. 200 gr. afhýddar og kældar
1 bolli, u.þ.b. 100 gr soðnar linsubaunir
1 handfylli, u.þ.b. 50 gr rifinn sojaostur
2 hvítlauksrif, smátt söxuð
nokkrir sólþurrkaðir tómatar, maukaðir
salt og pipar
1 msk. karrí, eða karrímauk (þá helst patak's)

Rasp
1 dl kókosmjöl
1 dl haframjöl
e.t.v. svolítið af möluðum hnetum

Setjið kartöflurnar í skál og maukið þær með höndunum. Bætið öllu hinu sem á að fara í buffin út í og hnoðið því saman. Notið ískúluskeið til að buffin verði mátulega stór, mótið þau síðan í höndunum og veltið upp úr raspinu. Ef buffin vilja molna mikið er hægt að þeyta eitt egg til að velta þeim upp úr áður en þeim er velt upp úr raspinu. Steikið buffin á heitri pönnu upp úr góðri olíu, t.d. isio4 eða sólblómaolíu, báðu megin þar til þau eru orðin fallega gullin á lit.

Sveppasósa