Indverskt Dahl
½  bolli olía
2 laukar smátt skornir
6 hvítlauksrif pressuð
góður biti af ferskum engifer (3-4 cm)mjög smátt saxaður
2 tsk. chilli flögur Byrjið m. eina tsk. og sjáið til hversu sterkur réttur á að vera.
1 tsk. turmerik
salt og pipar eftir smekk
300 gr. rauðar linsur
1/2 dós af kókósmjólk (má sleppa en gerir réttinn ríkari)
handfylli af ferskum kóriander

 

Laukurinn er steiktur í olíu ásamt kryddinu, hvítlauknum og engifernum. Baunirnar settar út í og hrært vel saman við. Kryddi og vatni bætt við. Vatnið á að fljóta yfir baunirnar.  Lækkið hitann og leyfið réttinum að malla í 30 mín. Athugið að bæta við vatni eða setja kókósmjólkina. Smakkið til og saltið rétt áður en maturinn er borinn fram. Best er að bæta ferskum kóriandernum saman við í restina.

Dalið er mjög gott með kókóshrísgrjónum og nan brauði.(madurlifandi.is)

Mér finnst rosalega gott að hafa gljáðar gulrætur með rauðlauk og engiferi.