Hnetusteik
300 g hrísgrjón, soðin
200 g cashewhnetur, ristaðar og malaðar
200 g heslihnetur, ristaðar og malaðar
200 g sætar kartöflur, rifnar
200 g sellerírót, rifin
200 g soðnar kartöflur
4 msk tómatpúrré
2 msk græn ólífuolía
2 msk karrí
2 stk laukar, smátt saxaðir
2 msk timian
1 msk salt
½ tsk chilli
Rasp
100 g cashewhnetur
100 g sesamfræ
1. Látið lauk, sæta kartöflu og sellerírót
krauma í ólífuolíunni á stórri pönnu í 20 mín. með kryddinu og tómatpúrré.
Kælið.
2. Setjið allt saman í hrærivélaskál og hrærið, gott er að nota hnoðarann
(k-stykkið).
3. Mótið deigið í ,,steik", veltið henni upp úr raspinu og bakið við 200°C í
u.þ.b. 40 mín.