Gljáðar gulrætur með rauðlauk og engifer

500 g gulrætur
1-2 rauðlaukar
2 msk olía
2 tsk hlynsíróp eða sykur
1 tsk engifer, fínsaxað eða rifið
nýmalaður pipar
salt
200 ml appelsínulímonaði
nokkrar greinar af fersku timjani (má sleppa)
Ofninn hitaður í 200°C. Gulræturnar skafnar eða flysjaðar og toppurinn skorinn
af. Rauðlaukurinn flysjaður og skorinn í geira. Olíu, sírópi, engifer, pipar og
salti blandað saman í eldföstu móti og gulrótunum og lauknum velt upp úr
leginum. Sett í ofninn, appelsíninu hellt í mótið og bakað í 30-40 mínútur, eða
þar til gulræturnar eru meyrar (best að stinga í þær með hnífsoddi). Bætið við
meira appelsíni eða vatni eftir þörfum, svo að gulræturnar brenni ekki. Þær eru
mjög góðar með alls konar steiktu og grilluðu kjöti.