Fylltar paprikur Patak's
fyrir 4
4 appelsínugular paprikur
4 msk olía
1/2 laukur, saxaður
1/2 rauð paprika söxuð
150 g sveppir, saxaðir
1 kúrbítur (300 g) saxaður
2-3 msk Patak's mild curry paste með kóríander og kummin
2 msk vatn
100 g basmati hrísgrjón, soðin skv. leiðbeiningum á pakka
salatblöð
2 pakkar Patak's nan-brauð
Hitið ofninn í 180°C. Skerið paprikur í tvennt og kjarnhreinsið. Raðið þeim á
bökunarplötu með sárið upp. Penslið með 2 msk af olíu og bakið í 25-30 mín.
Steikið lauk og rauða papriku í 2 msk af olíu þar til blandan er farin að
mýkjast. Bætið sveppum og kúrbít út í og steikið saman þar til allt er orðið
gegnumsteikt. Setjið Patak's curry paste út í ásamt 2 msk af vatni. Steikið í
u.þ.b. 2 mín. Bætið soðnu hrísgrjónunum útí grænmetisblönduna og hrærið vel
saman. Fyllið paprikurnar með hrísgrjónafyllingunni. raðið salatblöðum fallega á
fat og raðið paprikunum ofan á. Berð fram ásamt Patak's nan-brauði.