Fylltar paprikur fyrir 4
Sunnudagssteik grænmetisætunnar eftir Katrínu Júlíusdóttir
4 rauðar eða gular paprikur
Fylling:
150 g marinerað tófu (Undirbúa a.m.k. 2 tímum fyrr)
Marinering:
150 g tófu
7 cm. bútur engifer
Tamari-sósa
Skerið tófúið í teninga og setjið í skál. Rífið engiferinn með grófu rifjárni og kreistið safann yfir tófubitana. Hellið síðan vænum skammti af Tamari sósu yfir og blandið vel saman. Látið standa í a.m.k. 2 klst. og hrærið af og til (Má auðvitað vera lengur). Skiljið vökvann eftir áður en tófúið fer með hráefninu hér að neðan í matvinnsluvélina.
120 g möndlur og/eða hnetur
60 g sellerí, gróft skorið
100 g hálfþurrkaðir kirsiberjatómatar, (frá La Selva)
100 g grillaðar paprikur, (frá La Selva)
rúmlega handfylli Mung-baunaspírur
tæplega handfylli ferskt kóríander
100 g soja-parmesanostur
150 g soja mosarella ostur, rifinn
1/2 tsk. kumin
1/2 tsk. paprikuduft
cayenne-pipar á hnífsodd, eða eftir smekk.
sjávarsalt
Hitið ofninn í 200°C. Setjið allt hráefnið í matvinnsluvél nema parmesan- og
sojaost. Látið vélina ganga í u.þ.b. 15-20 sekúndur þannig að hráefnið blandist
vel saman en maukist ekki. Setjið í skál og blandið ostinum saman við með sleif.
Skerið paprikurnar í tvennt og hreinsið þær. Þjappið vel af fyllingu í hvern
helming og stráið sojaosti yfir. Setjið paprikuhelmingana í eldfast mót og bakið
í ofni í u.þ.b. 30 mínútur.
Mjög gott að bera þetta fram með Spínatsalati.