Falafel
250 gr kjúklingabaunir
1/2 laukur
6 hvítlauksrif
2 tsk kóríander (duft)
2 tsk kummin
1-2 msk steinselja, söxuð
safi úr hálfri sítrónu
nýnalaður pipar
salt
2 msk hveiti eða heilhveiti
1 lítri olía til djúpsteikingar
Leggið baunirnar í bleyti daginn áður en á að nota þær og látið þær standa í kæli. Hellið síðan vatninu af þeim. Setjið þær í pott og hellið yfir þær svo miklu af köldu vatni að það fljóti a.m.k. 2 sm yfir. Sjóðið baunirnar í 20 mínútur. Hellið baununum þá í sigti og látið renna af þeim (en geymið e.t.v. soðið). Setjið baunirnar í matvinnsluvél, ásamt lauk og hvítlauk, og látið vélina ganga þar til allt er orðið að grófgerðu mauki. Kryddið með kóríander, kummini, steinselju, sítrónusafa, pipar og salti. Hrærið síðan hveitinu saman við og vætið í deiginu með baunasoði eftir þörfum (einnig mætti hræra einu eggi saman við). Deigið á að vera svo þykkt að auðvelt sé að móta það. Rúllið úr því kúlur með hveitistráðum höndum - þær ættu að vera á stærð við golfkúlur eða örlítið minni. Hitið olíuna potti eða djúpri pönnu og steikið bollurnar við góðan hita þar til þær eru dökkgullinbrúnar á öllum hliðum. Snúið þeim oft á meðan svo þær steikist jafnt. Látið renna vel af þeim á eldhúspappír og berið síðan fram heitar með hreinni jógúrt og t.d. tómötum og gúrkum, eða góðu grænmetissalati. Einnig má bera bollurnar fram í pítubrauði, ásamt grænmeti og jógúrt, e.t.v. kryddaðri með feskri mintu og örlitlum chili-pipar.
Það má líka nota niðursoðnar baunir (2 dósir) í bollurnar, en þó er betra að nota baunir sem ekki eru fullsoðnar. Í stað þess að djúpsteikja bollurnar má móta lítil buff og steikja í um 1 sm djúpu lagi af olíu þar til þau eru stökk á báðum hliðum.