Chili kartöflubuff

500 g bökunarkartöflur
salt
1 rautt og 1 grænt chili aldin, fræhreinsuð
1/2 laukur
1 hvítlauksgeiri
1-2 msk kóríanderlauf, saxað (má sleppa)
2 msk ólífuolía
nýmalaður pipar
100 g bragðmikill ostur
þurrt brauðrasp eftir þörfum
olía til steikingar

Afhýðið kartöflurnar, skerið þær í stóra bita og sjóðið í léttsöltu vatni þar til þær eru meyrar. Látið þær kólna nokkra stund. Saxið chili, lauk, hvítlauk og kóríandaerlaufin saman e.t.v. í matvinnsluvél og stappið svo kartöflurnar saman við eða notið vélina til að mauka þær. Hrærið olíunni saman við og kryddið með pipar og salti eftir smekk. Skreið ostinn í litla teninga eða rífið hann gróft og blandið saman við. Hærið að lokum raspi saman við, nægilega miklu til að degið verður fremur þétt í sér og auðvelt að móta úr því kringlótt buff, um 2 sm þykk. Hitið olíu á pönnu. Veltið buffunum upp úr brauðraspi og steikið þau við meðalhita þar til þau eru gullinbrún á báðum hliðum. Berið þau fram heit eða volg t.d. með tómat-kryddjurtasósu eða annari góðri sósu, svo og salati.