Bygghleifur
3 dl bankabygg
250 gr sveppir
2 blaðlaukar
2 hvítlauksgeirar
2 sellerýstiklar
3 msk sóblómafræ
3 gulrætur
2 grænar paprikur
1 dl rúsínur
1 dl byggmjöl
3 egg
1/2 msk malað kóriander
1/2 búnt steinselja
salt og pipar
Aðferð
Bankabyggið er soðið í u.þ.b. 40 mín. 1 hluti bygg á móti 3 af vatni.
Sveppirnir eru steiktir.
Síðan er öllu hráefninu blandað saman og hakkað, sett í brauðform og bakað við
170°C í 40 mín.
Gott er að hafa lok á forminu þar til 10-15 mín. eru eftir af bakstrinum.
Látið standa í forminu í nokkrar mínútur áður en hvolft er á fat og borði fram.
Hugmyndir að meðlæti
Ferskt salat, tómat salsa, kartöflubátar bakaðir með olíu og rósmarin.