Tófústeik með hnetusósu

2 pakkar tófú

2-3 msk. fimm krydd (fæst í Asian)

1 geiri saxaður hvítlaukur

2-3 msk. sojasósa

1-2 msk. jurtaolía

sesamolía

Skerið tófú í 1 sentimetra þykkar sneiðar og marínerið í fimm krydd, hvítlauk og sojasósu, helst yfir nótt. Setjið olíu á tófúið og bakið í ofni í 30 mínútur við 180 gráður eða uns báðar hliðar eru brúnaðar.

Sósa

2 msk. hnetusmjör

1/4 bolli sojamjólk

1 tsk sojamjólk

nokkrar dropar af sesamolíu

Blandið hnetusmjöri og mjólk saman og hitið blönduna í potti. Lækkið hitann þegar sósan er orðin þykk. Bragbætið með sojasósu og sesamolíu. Berið fram með tófústeikinni.