Sveppagratín
400 g ferskir sveppir, gróft skornir
4 tsk smjör
1 ostarúlla með píkant, skorin í sneiðar
1 pakki frosið spergilkál (250 g)
1 rúlletta með graslauk
1 dl rjómi
1-2 dl rifinn Danbo ostur með kúmeni
Dreifið helmingnum af sveppunum yfir botninn á eldföstu móti og setjið smjörið
hér og þar yfir.
Raðið ostarúllusneiðum yfir. Dreifið frosnu spergilkáli þar ofan á og afganginn
af sveppunum yfir spergilkálið.
Merjið rúllettuna með gaffli og hrærið rjómanum saman við. Dreifið þessu yfir
sveppina.
Dreifið rifna ostinum yfir réttinn og bakið hann í miðjum ofni við 200°C í 20
mínútur. Þessi réttur er mjög góður sem meðlæti með ýmsum kjötréttum. Hann er
einnig góður sem sjálfstæður réttur borinn fram með soðnu fersku pasta.