Strengjabaunir með tómötum
2 msk ólífuolía
hvíti hlutinn af 5-6 vorlaukum, saxað
2 hvítlauksgeirar, saxaðir
250 g strengjabaunir
3-4 tómatar, fræhreinsaðir og saxaðir smátt
150 ml vatn, eða eftir þörfum
nýmalaður pipar
salt
söxuð steinselja
Olían hituð á pönnu og vorlaukur og hvítlaukur
settur á hana og steiktur í
1-2 mínútur við meðalhita. Baunirnar settar á pönnuna og steikt áfram í 2-3
mínútur. Þá er tómötunum bætt á pönnuna og 1-2 mínútum síðar vatninu. Látið
malla við fremur hægan hita í 8-10 mínútur. Kryddað með pipar og salti,
dálítilli saxaðri steinselju stráð yfir, og borið fram.