Steikt hrísgrjón með eggjaræmum

2 egg
2 msk kalt vatn
3 msk olía
300 g hrísgrjón, gjarna jasmínhrísgrjón
salt
2 vorlaukar, saxaðir
2 msk sojasósa

Eggin brotin í skál og vatninu þeytt saman við. 1 msk af olíu hituð á
lítilli pönnu, helst húðaðri, og eggjunum hellt á hana. Hrært rólega í
eggjakökunni þar til hún er nokkurn veginn stífnuð og þá er henni rennt yfir
á disk og hún látin kólna. Hrísgrjónin soðin í saltvatni þar til þau eru vel
meyr og síðan látið renna vel af þeim ef þarf. Afgangurinn af olíunni
hitaður vel í wokpönnu eða á þykkbotna pönnu og vorlaukurinn veltisteiktur í
1-2 mínútur. Hrísgrjónin sett á pönnuna og steikt í 2-3 mínútur í viðbót.
Sojasósunni hrært saman við. Eggjakakan skorin í 1/2-1 cm þykkar ræmur og
blandað saman við. Sett í skál og borið fram.