Steikt tófú að kínverskum hætti

1 pk tófú (fæst t.d. í Fjarðarkaupum og Bónus)
1/2 rauðlaukur
1/2 blaðlaukur
1 msk fimm krydd (fæst í Sælkerabúðinni)

Sósa
1 msk dökk sojasósa
1 msk ljós sojasósa
1 msk hunang
1 msk maisduft
1/4 lítri vatn
sesamolía

Skerið tófú í mjög þunnar sneiðar. Steikið á pönnu og brúnið báðar hliðar. Kælið og skerið allar sneiðarnar niður í 3-4 litla bita.
Marinerið í sojasósu og sesamolíu. Skerið laukinn í þunna strimla. Hitið olíu á pönnu og steikið laukinn með kryddinu. Bætið tófú við og steikið vel. Hellið skvettu af vatni út í og látið lokið á pottinn. Látið malla í smá stund. Hrærið sósuna vel og bætið henni í pottinn. Haldið áfram að steikja uns sósan er orðin mátulega þykk. Berið fram strax. Má skreyta með niðurskornum vorlauk.