Spínatbollur með krydduðu möndlumajó

1 poki ferskt spínat (300 g)
1/2 kg soðnar kældar kartöflur (má nota tofu í staðinn fyrir kartöflurnar og fetaostinn)
100 g fetaostur
1 hvítlauksrif, pressað
2 tsk karrí
1/2 tsk múskat
1/2 tsk gerlaus grænmetiskraft
Himalaya- eða sjávarsalt og nýmalaður pipar
100 g malaðar möndlur

Setjið spínatið í matvinnsluvél, malið það frekar smátt og setjið það svo í skál. Bætið soðnum kartöflum, fetaosti, hvítlauk, karrí, múskati, grænmetiskrafti, salti og pipar út í og klípið deigið létt saman.
Malið möndlurnar í matvinnsluvélinni og setjið síðan spínat/kartöflublönduna líka í matvinnsluvélina og hrærið þar til þetta hangir vel saman.
Mótið litlar bollur og bakið þær í 7-10 mínútur við 200°C

Kryddað möndlumajó:
2 1/2 dl lífrænar möndlur sem lagðar hafa verið í bleyti (þú leggur svona 1 1/2 dl af möndlum í bleyti til að fá þetta magn)
1 1/2 dl vatn
1 hvítlauksrif
1 msk tamarisósa
3 msk sítrónu- eða límónusafi
1/2 tsk laukduft
1/2 tls karrí
örlítið af cayenne pipar
2 msk mango chutney ("Geets" sem fæst í Hagkaupum er tær snilld)
1-2 dl kaldpressuð ólífuolía, t.d. frá LaSelva, eða hörfræolía

Ef þið viljið hafa majóið alveg hvítt er best að afhýða möndlurnar.

Setjið allt í blandara nema olíuna og hrærið þar til blandan verður silkimjúk. Bætið olíunni rólega út í á meðan blandarinn er í gangi til að fá mjúka og þykka majóáferð.