Snöggsteikt kál að austurlenskum hætti
300 g hvítkál
300 g kínakál
½ lítil gúrka
1 rauð paprika
2-3 cm bútur af engifer, saxaður
smátt
2-3 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
2-3 vorlaukar, saxaðir smátt (hvíti og græni hlutinn sér)
3 msk. sojasósa
2 msk. ostrusósa
1 msk. sæt chilisósa
örlítið vatn
saxað kóríanderlauf Skerðu hvítkálið í mjóa strimla og Kínakálið í aðeins
breiðari strimla. Skerðu gúrkuna í 5 cm búta og hvern bút síðan í mjóa stauta.
Fræhreinsaðu paprikuna og skerðu hana í ræmur. Hitaðu olíuna vel á wok eða
stórri pönnu og snöggsteiktu engifer, hvítlauk og hvíta hlutann af vorlauknum
við háan hita í um 1 mínútu. Lækkaðu hitann ögn og bættu káli, gúrku og papriku
á pönnuna, ekki þó öllu í einu, og hrærðu stöðugt á meðan. Steiktu grænmetið þar
til kálið er farið að mýkjast ögn. Bættu þá sojasósu, ostrusósu og chilisósu
saman við ásamt örlitlu vatni og grænu vorlauksbitunum, hrærðu vel og láttu
malla þar til grænmetið er rétt orðið meyrt. Bragðbættu eftir smekk, til dæmis
með meiri chilisósu. Stráðu kóríanderlaufi yfir og berðu fram.