Smjördeigsbaka með sveppum og lauk
4 smjördeigsplötur
1 msk smjör eða olía
1 laukur, saxaður
250 g sveppir, saxaðir
1-2 vorlaukar, saxaðir (má sleppa)
1/2 tsk próvensölsk eða ítölsk kryddjurtablanda
nýmalaður pipar
salt
200 g (1 dós) sýrður rjómi, 36%
1 egg
Ofninn hitaður í 200 gráður og smjördeigið
látið þiðna. Olían hituð í potti
og laukurinn látinn krauma í henni í 3-4 mínútur. Sveppir og vorlaukur sett
út í ásamt kryddjurtum, pipar og salti og látið krauma í nokkrar mínútur.
Rjómanum hrært saman við og látið malla í 2-3 mínútur í viðbót. Tekið af
hitanum og smakkað til. Tvær deigplötur settar á létt-hveitistráð borð og
látnar skarast ögn. Brúnunum þrýst saman og deigið síðan flatt út þar til
það er á að giska helmingi stærra en áður. Hinar plöturnar tvær flattar út á
sama hátt, þar til þær eru álíka stórar. Eggið brotið í skál´og þeytt létt
með gaffli.Önnur deigplatan sett á pappírsklædda bökunarplötu og brúnirnar
penslaðar með eggi. Sveppajafningurinn settur í miðjuna, hin deigplatan sett
ofan á og brúnunum þrýst vel saman, gjarna með gaffli. 1-2 göt gerð ofan á
bökuna til að hleypa út lofti. Bakan pensluð með eggi, sett í ofninn og
bökuð í um 25 mínútur, eða þar til hún er fallega gullinbrún. Hana má borða
heita eða kalda, t.d. með salati.