Sítrónublómkál
500 g blómkál
salt
2 msk jómfrúarolía
1 hvítlauksgeiri, saxaður smátt (má sleppa)
1 sítróna
nýmalaður pipar
Blómkálið soðið í saltvatni þar til það er rétt
orðið meyrt. Hellt í sigti
og látið renna vel af því en síðan tekið upp, látið kólna og skipt í kvisti.
Olían hituð á stórri pönnu (með hvítlauknum, ef hann er notaður) og safinn
úr sítrónunni kreistur út í. Kryddað með pipar og salti og síðan er
blómkálið sett á pönnuna og látið krauma við hægan hita þar til það er heitt
í gegn og alþakið sítrónuolíunni. Borið fram t.d. með fiski eða kjúklingi.