Sætkartöflusteik „Rotolo“
fyrir fjóra

Rotolo:
4 stk. meðalstórar sætar kartöflur
2 stk. bökunarkartöflur
100 ml kókosmjólk
1 stk. hvítlauksgeiri
½ búnt af salvíu
Salt og pipar

Fylling:
4 stk. portobello-sveppir
200 g geitaostur
1 stk. rauð paprika
1 lúka af spínati

Aðferð:
Kókosmjólkin er hituð í potti ásamt hvítlauknum og krydduð með salti og pipar. Kartöflurnar eru skornar í eins þunnar sneiðar og mögulegt er í japönsku mandolini.
Kartöflusneiðunum er velt upp úr kókosmjólkinni og því næst raðað þétt saman á silikonmottu með fínt saxaðri salvíu á milli laga, fyrst lag af sætum, því næst lag af bökunarkartöflum og að
lokum lag af sætum kartöflum, önnur silikonmotta er lögð yfir kartöflurnar og þær bakaðar í 15 til 20 mínútur við 190°C eða þar til þær eru orðnar mjúkar og samanpressaðar.

Fyllingin:
Sveppirnir eru steiktir á pönnu og skornir í sneiðar. Paprikan er vafin inn í álpappír og hún bökuð í ofni við 190°C þar til hún er orðin mjúk eða í um 15 mínútur, þá er kjarninn
hreinsaður úr og hún kæld.

Rúllan:
Þegar kartöflurnar eru tilbúnar er þeim hvolft varlega á álpappír sem búið er að smyrja með ólívuolíu, spínatlaufunum er raðað ofan á, því næst paprikunni, svo sveppunum
og að lokum er geitaosturinn mulinn í miðjuna og kartöflunum rúllað þétt utan um fyllinguna og hún bökuð í 10 mínútur við 200°C. Skerið rúlluna í fjórar jafn stórar
steikur og berið fram með spergilkálssalati með mandarínum og pestói úr sólþurrkuðum tómötum.