Sætkartöflu- og mangósalat

2 stórar sætar kartöflur, skrældar og skornar í bita
1 mangó, skorið í bita
1 rauður chilipipar, fínt saxaður
1 rauð paprika, skorin í bita
1 gul paprika, skorin í bita
ólífuolía
salt og pipar
ferskt kóríander, létt saxað börkur af einni sítrónu

 

Aðferð: Sjóðið kartöflurnar og setjið í skál ásamt paprikunni, mangói og chili-piparnum. Rífið börk af einni sítrónu og blandið saman við ásamt skvettu af ólífuolíu, salti, pipar og kóríander.