Rófuréttur
3 kg. maj rófur ( var nú bara með nýja
haustrófur)
1 líter edik (keypti auðvitað danskt Heidelberg edisk, svo ég gerði enga
vitleysu)
1,5 kg. sykur
engifer eða kanilstangir
Rófurnar skornar í frekar fallega bita frekar
þunna.
Sykur og edik soðið saman þar til bráðið.
Rófur settar út í og látar sjóða í leginum í 7-10 mínútur.
Lok sett á, þær teknar af og látnar standa og kælast í pottinum.
Síðan sett í krukkur þegar þetta er orðið kalt.
Ég skar nokkra bita (sneiðar) af engifer( 5-6) og lét krauma með, en
veiddi þá uppúr áður en ég setti í krukkurnar, en kannski er það allveg
óþarfi.
Þetta er allveg ótrúlegt bragð sem kemur, og engann grunar að hann sé að
borða rófur,
Næst ætla ég að prófa með kanilstöngum.