Risotto með tómötum og skinku

1 l gott kjúklinga- eða grænmetissoð, eða vatn og 2 tsk grænmetiskraftur úr
Heilsuhúsinu (Swiss Vegetable Bouillon Powder)
2 msk ólífuolía
1/2 laukur, saxaður smátt
1-2 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt
250 g arborio-hrísgrjón
1/2 tsk þurrkuð basilíka
nýmalaður pipar
salt
200 ml hvítvín (eða meira soð)
3-4 tómatar, saxaðir
1/2 kúrbítur, skorinn í bita
100-150 g skinka, skorin í ræmur (má sleppa)
4 msk nýrifinn parmigiano-ostur

Soðið sett í pott, hitað að suðu og haldið við suðu allan tímann meðan
risottoið er eldað. Olían hituð í potti og laukurinn og hvítlaukurinn látinn
krauma í henni í nokkrar mínútur við meðalhita. Grjónin sett út í og hrært
stöðugt í 2-3 mínútur, eða þar til þau eru þakin olíu og farin að verða
glær. Krydduð með basilíku, pipar og salti. Þá er víni (eða bolla af soði)
hellt yfir, hrært og látið sjóða þar til nær allur vökvinn er gufaður upp.
Sjóðandi soði er svo bætt út í smátt og smátt, hálfum bolla eða svo í senn,
og látið sjóða þar til grjónin hafa sogið það í sig. Hrært mjög oft. Haldið
áfram þar til grjónin eru meyr (gæti tekið 20-25 mínútur). Eftir um 10
mínútur er tómötum og kúrbít hrært saman við og þegar um 5 mínútur eru eftir
af suðunni er skinkan sett út í, ef hún er notuð. Þegar grjónin eru tilbúin
er potturinn tekinn af hitanum, ostinum hrært rösklega saman við og þegar
hann er bráðinn er risottoið smakkað til með pipar og salti og síðan borið
fram, e.t.v. skreytt með ferskum kryddjurtum.