ofnbakaður kartöfluréttur (kartöflugratín)
1 kg hráar kartöflur
3 egg
3 dl rjómi
2 dl mjólk
0,75 tsk múskat (ferskt)
1 tsk salt
0,5 tsk pipar
3,5 hvítlauksrif
100 g 26% ostur (gouda)
3 msk parmesanostur
20 g smjör
Flysjið og sneiðið kartöflur í jafnar sneiðar. Blandið saman eggjum, mjólk,
rjóma og kryddi. Nuddið skálina að innan með hvítlauksrifi (1-2) og síðan með
smjöri. Leggið kartöflusneiðar og rifinn ost í lögum í skálina, ost efst. Hellið
rjómablöndunni yfir og stráið rifnum parmesanosti ofan á. Dreifið smjöri í bitum
yfir. Bakið við u.þ.b. 200°C í 1 klst.
Berið fram með kjöti eða sem sjálfstæðan rétt með brauði.
