Ofnbakaðir tómathelmingar
6-8 meðalstórir tómatar, þroskaðir
4 msk ólífuolía
2 hvítlauksgeirar
1/2 tsk sykur (má sleppa)
1/4 tsk oregano
1/4 tsk timjan
1/4 tsk kummin, steytt
nýmalaður pipar
salt
Ofninn hitaður í 215 gráður. Tómatarnir skornir
í helminga. 1 msk af olíu
dreift á botninn á eldföstu fati og tómötunum raðað í það með skurðflötinn
upp. Hvítlauksgeirarnir skornir í örþunnar sneiðar og dreift yfir og síðan
er sykri, kryddjurtum, pipar og salti blandað saman og stráð yfir tómatana.
Afganginum af olíunni dreypt yfir, sett í ofninn og bakað í 20-25 mínútur,
eða þar til tómatarnir eru vel meyrir og farnir að brúnast á röndum. Bornir
fram sjóðheitir.