Ofnbakað ostablómkál
1 blómkálshöfuð, meðalstórt
100 g smjör og 4-5 smjörklípur að auki
2 dl brauðrasp
1 brie ostur með gráðostarönd
3-4 msk rjómi
Skiptið blómkálinu í litla kvisti og sjóðið í 5 mínútur í léttsöltu vanti. Látið
síga af blómkálinu.
Bræðið smjörið á pönnu og bætið blómkálskvistum og brauðraspi út í og brúnið
aðeins. Setjið allt í eldfast mót og setjið 4-5 smjörklípur ofan á.
Sneiðið bríe ostinn niður og leggið sneiðarnar yfir réttinn. Dreypið rjómanum
yfir. Bakið í miðjum ofni við 200°C í u.þ.b. 20 mínútur. Rétturinn er gott
meðlæti með bæði fisk- og kjötréttum eins einn og sér með ristuðu brauði.