Marinerað Tófú á spjóti með stay sósu
aðalréttur fyrir 6

2-3 pakkar tófú
1 pakki sveppir
2 rauðar paprikur

Marinering
1 chili
2dl tamari- eða sojasósa
2 dl olía
2 hvítlauksgeirar (hakkaðir)
2 þumlar engifer (rifið)
öllu blandað saman

Tófúið skorið í hæfilega bita. Sveppirnir hafðir heilir og mareneringunni hellt yfir. Látið standa í eina klukkustund en ekki lengur. Grænmetið of tófúið sett á spjót og bakað í ofni við 200°C í 15-20 mínútur. Satay-sósu er bæði hægt að laga frá grunni eða kaupa nánast tilbúna. Mælt er með Geo organic satay-sósu sem fæst í Manni lifandi. Með þessu er hægt að hafa hvaða meðlæti sem er eins og rauðbeður, waldorfsalat, grjón og fleira.